Nýsköpunarsjóður námsmanna - framlengdur umsóknarfrestur

6.2.2024

Nýr umsóknarfrestur Nýsköpunarsjóðs námsmanna er 12. febrúar 2024 klukkan 15:00. Var áður 6. febrúar 2024 kl. 15:00. 

Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknarstofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða námsmenn í grunnnámi og námi á meistarastigi við háskóla til sumarvinnu að rannsókna- og þróunarverkefnum.

Verkefnin skulu leyst af hendi með sjálfstæðri og faglegri vinnu námsmanns undir leiðsögn umsjónarmanns frá háskóla, stofnun eða fyrirtæki. Styrkir eru ekki veittir til lokaverkefna námsmanna.


ATH: Framlengdur umsóknarfrestur er 12. febrúar 2024 kl. 15:00


Stefnt er á úthlutun fyrir páska 2024.

Hverjir geta sótt um?

  • Háskólanemar í grunn og meistaranámi.

  • Sérfræðingar innan fyrirtækja, stofnana og háskóla sem óska eftir að ráða háskólanema í sumarvinnu við rannsóknar- og/eða þróunarverkefni.

Sótt er um í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís.

Nánari upplýsingar, reglur og leiðbeiningar er að finna á síðu Nýsköpunarsjóðs námsmanna.

Einnig er hægt að senda fyrirspurn á nsn@rannis.is









Þetta vefsvæði byggir á Eplica