Nýsköpunarsjóður námsmanna – umsóknarfrestur 10. febrúar 2017 kl. 16:00

9.12.2016

Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki í Nýsköpunarsjóð námsmanna. Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknar­stofnunum og fyrir­tækjum tækifæri til að ráða háskóla­nema í grunn- og meistara­námi í sumar­vinnu við rannsóknar- og þróunarverkefni.  

Styrkir verða veittir til rannsóknar- og þróunar­verkefna sem líkleg þykja til að stuðla að nýsköpun og auknum tengslum háskóla, stofnana og fyrirtækja og eru umsóknir metnar með hliðsjón af möguleikum til hagnýtingar í atvinnulífi og nýnæmi þekkingar í viðkomandi fræðigrein.

Úthlutun mun liggja fyrir í mars/apríl 2017.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir og er frestur til að senda inn umsókn 10. febrúar 2017 til kl. 16:00.

Upplýsingar um sjóðinn og umsóknarferlið er hægt að nálgast á heimasíðu sjóðsins.

Nánari upplýsingar veitir Ægir Þór Þórsson s: 515-5819 









Þetta vefsvæði byggir á Eplica