Kynningarfundur um nýsköpunar­styrki Evrópska nýsköpunar­ráðsins (EIC)

5.5.2022

Þann 19. maí nk. stendur Rannís fyrir kynningarfundi í húsnæði sínu að Borgartúni 30, 3. hæð, frá klukkan 9:00-10:00. Þar verða kynntir nýsköpunarstyrkir Evrópska nýsköpunarráðsins (European Innovation Council).

Kynningin er fyrir fyrirtæki sem hafa áhuga á Accelerator köllum European Innovation Councils ásamt upplýsingum um stuðning við íslenska umsækjendur. Kynningin er haldin í samstarfi við Enterprise Europe Network (EEN) á Íslandi, Samtökum sprotafyrirtækja (SSP), Samtökum iðnaðarins (SI), Evris og Grænvang.

Þátttaka er gjaldfrjáls en skráning er nauðsynleg. Boðið verður upp á kaffi og croissant.

Skráning 

Dagskrá:

  • EIC styrkir – open og ‚fit for 55‘
  • EIC styrkir - fókus á græn tækifæri
  • AI Umsóknarkerfið
  • Stuðningur íslenskra aðila við umsækjendur


skreytimynd









Þetta vefsvæði byggir á Eplica