Nýsköpunarþing 2022

20.9.2022

Nýsköpunarþing 2022 var þriðjudaginn 20. september í Grósku

Yfirskrift þingsins 2022 er Hugvitið út!Hvernig verður hugvit stærsta útflutningsgrein Íslands?

skreytimyndUmfjöllunarefni Nýsköpunarþings hverju sinni tengist rannsóknum, þróun og markaðsmálum. Umræðuefnið er ávallt valið með það í huga að ýta undir skilning manna á samspili vísinda, tækni og þekkingar annars vegar og vöruframleiðslu og markaðsstarfs hins vegar. Nýsköpunarverðlaun Íslands eru veitt á Nýsköpunarþingi.

Dagskrá

  • Ávarp
    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  • Undirstöður og drifkraftar verðmætasköpunar á grunni hugvits
    Dr. Ari Kristinn Jónsson, forstjóri AwareGo
  • Sjálfbærni og nýsköpun: Verkfæri í sölu- og markaðsstarfi

    Klara Sveinsdóttir framkvæmdastjóri gæða- og skráningarmála Kerecis

  • Nýsköpun felst í mannauðnum
    Elín María Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðssviðs hjá Controlant
  • Loforðin á bak við markmiðið
    Jenný Ruth Hrafnsdóttir, meðstofnandi Crowberry Capital
  • Nýsköpunarverðlaun Íslands 2021 og 2022
    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  • Fundarstjóri er Ágúst H. Ingþórsson, forstöðumaður Rannís.

Hægt er að fylgjast með þinginu í beinni útsendingu hér að neðan:

Útsending frá Nýsköpunarþingi 

Nýsköpunarþing er haldið í samstarfi Rannís, Íslandsstofu, Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Hugverkastofunnar.

 Rannis_1661349940553  

Islandsstofa-business-iceland-tall
 

 









Þetta vefsvæði byggir á Eplica