Opið fyrir umsóknir í Vinnustaðanámssjóð

21.12.2022

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Vinnustaðanámssjóði. Sjóðurinn veitir styrki til fyrirtækja og stofnana vegna vinustaðanáms og starfsþjálfunar sem er skilgreindur hluti af starfsnámi skv. aðalnámsskrá framhaldsskóla. Umsóknarfrestur er til 20. janúar 2023 kl. 15:00. 

Markmið Vinnustaðanámssjóðs er að hvetja fyrirtæki og stofnanir til þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af starfsnámi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi. 

Umsóknum skal skila á rafrænu formi í gegnum umsóknarkerfi Rannís. 

Umsóknarfrestur er til 20. janúar 2023 kl. 15:00.

Umsóknargögn og leiðbeiningar er að finna hér.

Nánari upplýsingar veitir Skúli Leifsson í síma 515 5843 eða í netfangi vinnustadanamssjodur@rannis.is.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica