Tilkynnt um nýja undiráætlun í NORFACE

11.12.2015

NORFACE hefur sent út tilkynningu um að í janúar verði opnað fyrir umsóknir í nýja undiráætlun sem ber heitið Dynamics of Inequality Across the Life-course: structures and processes (DIAL).

Megináhersla í þessum flokki er að auka skilning á orsökum og virkni ójafnaðar og birtingarmyndir hans á mismunandi stigum æviskeiðsins, orsakir og afleiðingar í tengslum við þann ójöfnuð og þau áhrif á félagslega samheldni sem hann veldur í því skyni að koma auga á leiðir til bættrar stefnumótunar á því sviði. Opnað verður fyrir umsóknir um miðjan janúar en frestur til að skila inn umsóknum verður um miðjan mars 2016 (endanleg dagsetning verður gefin út þegar kallið verður opnað).

Frekari upplýsingar um umsóknir í þennan flokk má finna hér.

NORFACE er þverþjóðlegt samstarfsnet 16 evrópskra stofnana um fjármögnun rannsókna á sviði félags og mannvísinda, frekari upplýsingar má nálgast hér .









Þetta vefsvæði byggir á Eplica