Opnað fyrir þátttöku í 40 nýjum COST verkefnum

6.12.2018

Tilgangur COST verkefna er að byggja upp samstarfsnet rannsakenda í Evrópu á ákveðnum rannsóknasviðum. Þátttakendur í COST verkefnum skiptast á reynslu og niðurstöðum í gegnum fundi og ráðstefnur, vinnustofur og heimsóknir.

  • Cost

COST greiðir fyrir kostnað þátttakenda vegna ferða og ráðstefnuhalds en greiðir ekki kostnað við rannsóknaverkefnin sjálf. COST verkefni hafa oft leitt til áframhaldandi samstarfs á milli þátttakenda í styrkumsóknum í stærri verkefni í Rannsóknaáætlun ESB.

Ísland getur tilnefnt tvo aðalmenn og fjóra varamenn í hvert verkefni. Þátttaka í COST verkefni er opin öllum vísindamönnum sem hafa sérþekkingu á því sviði sem verkefnið fjallar um, hvort sem er að ræða doktorsnema eða reyndari vísindamenn úr bæði háskólum og einkageira. Óski menn eftir tilnefningu skal senda umsókn til Rannís ( nánari upplýsingar um umsóknarferlið ).

Samþykkt COST verkefni haust 2018 

Upplýsingar umCOST hjá RANNÍS 

Heimasíða COST 









Þetta vefsvæði byggir á Eplica