Opnað fyrir þátttöku í 70 ný COST verkefni

1.6.2022

Tilgangur COST verkefna er að byggja upp alþjóðleg samstarfsnet rannsókna og nýsköpunar á ákveðnum rannsóknasviðum. Þátttakendur í COST verkefnum skiptast á reynslu og niðurstöðum í gegnum fundi og ráðstefnur, vinnustofur og heimsóknir.

COST greiðir fyrir kostnað þátttakenda vegna ferða og ráðstefnuhalds í þessum verkefnum en greiðir ekki kostnað við rannsóknaverkefnin sjálf. COST verkefni hafa oft leitt til áframhaldandi samstarfs á milli þátttakenda í styrkumsóknum í stærri verkefni í Rannsóknaáætlun ESB.

Samþykkt COST verkefni (pdf)

Á síðasta ári var reglum breytt og nú getur Ísland tilnefnt tvo stjórnarmeðlimi í hvert verkefni.  

Einnig geta áhugasamir skráð sig í vinnuhópa (Working group) og er viðkomandi þá ekki formlegur fulltrúi Íslands. Slík skráning fer ekki í gegnum Rannís.

Þátttaka í COST verkefni er opin öllu vísindafólki sem hefur sérþekkingu á því sviði sem verkefnið fjallar um, hvort sem um er að ræða doktorsnema eða reyndari vísindamenn úr bæði háskólum og einkageira. 

Ósk eftir tilnefningu skal senda í formi umsóknar til Rannís: Nánari upplýsingar  

Frétt á vef COST









Þetta vefsvæði byggir á Eplica