Opnað fyrir umsóknir um UK-Iceland Explorer námsstyrki 2024

15.1.2024

UK-Iceland Explorer námsstyrkjasjóðurinn er liður í auknu samstarfi milli Íslands og Bretlands á sviði menntunar, rannsókna, nýsköpunar og geimvísinda. Umsóknarfrestur í sjóðinn er til og með 5. apríl kl. 15:00.

Námsstyrkjasjóðnum er ætlað að koma til móts við þann kostnað sem hlýst vegna skólagjalda og mun hver styrkhafi fá styrk fyrir skólagjöldum sem nemur að hámarki 10.000 sterlingspundum.

Einstaklingar sem stefna á framhaldsnám til fullrar gráðu við háskóla í Bretlandi á skólaárinu 2024-2025 geta sótt um styrkinn til Rannís, sem annast umsýslu sjóðsins í samstarfi við Geimferðastofnun Bretlands og breska sendiráðið í Reykjavík. 

Umsóknir sem tengjast geimvísindum eru settar í sérstakan forgang en ekki er gerð krafa um slíka tengingu. Styrkhafar eiga einnig kost á því að sækja um tveggja mánaða launaða starfsþjálfun, sem skipulögð er af Geimferðastofnun Bretlands, á sama tíma og sótt er um UK-Iceland Explorer námsstyrkjasjóðinn.

Allar nánari upplýsingar um UK-Iceland Explorer og umsóknarform má finna á  síðu sjóðsins. Tekið er á móti umsóknum til  5. apríl kl. 15:00 að íslenskum tíma.

English









Þetta vefsvæði byggir á Eplica