Óskað eftir tilnefningum til Vaxtarsprotans 2025
Óskað er eftir tilnefningum fyrir Vaxtarsprotann. Meginviðmið er vöxtur í söluveltu sprotafyrirtækis milli síðasta árs 2024 og ársins á undan 2023. Tilnefningar er hægt að senda til og með 31. ágúst.
Það fyrirtæki sem sýnir mestan hlutfallslegan vöxt hlýtur nafnbótina Vaxtarsproti ársins. Einnig eru veittar sérstakar viðurkenningar til sprotafyrirtækja sem hafa sýnt mestan hlutfallslegan vöxt, annars vegar í flokki fyrirtækja sem velta á bilinu 10-100 milljónum króna og hins vegar sem velta á bilinu 100-1.000 milljónum króna.
Veitt er sérstök viðurkenning til sprotafyrirtækja sem náð hafa þeim árangri á síðasta ári í fyrsta sinn að velta meira en einum milljarði króna. Við leitum því einnig eftir ábendingum um sprotafyrirtæki sem hafa náð því marki.
Skilyrði:
- Frumkvöðull sé til staðar í fyrirtækinu.
- Fyrirtækið má ekki vera í meirihlutaeigu fyrirtækis á meðal 100 stærstu á Íslandi, fyrirtækis á aðallista Kauphallar eða vera sjálft á aðallista Kauphallar.
Smellið hér til að senda inn rafræna tilnefningu
Vaxtarsprotinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samtaka sprotafyrirtækja, Háskólans í Reykjavík og Rannís. Tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja. Aðstandendur verkefnisins skipa dómnefnd sem sér um val á þeim fyrirtækjum sem hljóta viðurkenningu og nafnbótina Vaxtarsproti ársins.