Óskað er eftir tilnefning­um til viður­kenningar fyrir vísinda­miðlun

9.9.2021

Viðurkenning Rannís fyrir vísindamiðlun 2021 verður veitt í beinu streymi föstudaginn 24. september kl. 15:00, þar sem Vísindavaka er ekki haldin með hefðbundnum hætti í ár. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra afhendir viðurkenninguna fyrir hönd Rannís.

Viðurkenning fyrir vísindamiðlun er veitt einstaklingi, stofnun, fyrirtæki, samtökum eða verkefni, sem þykir hafa staðið ötullega að því að miðla vísindum og fræðum til almennings á áhugaverðan hátt. 

Tilnefningar sendist í tölvupósti til Rannís í síðasta lagi 21. september nk. í netfangið visindavaka@rannis.is

Til að hljóta viðurkenningu fyrir vísindamiðlun, skal hún hafa stuðlað að bættum skilningi almennings, barna, ungmenna og fullorðinna, á vísindum og fræðum og á mikilvægi þeirra fyrir íslenskt samfélag. Einnig skal vísindamiðlunin hafa vakið athygli á starfi vísindamanna og á mikilvægi rannsókna og nýsköpunar í íslensku samfélagi.

Fyrri handhafar viðurkenningarinnar









Þetta vefsvæði byggir á Eplica