Óskað er eftir tilnefningum til Hvatningar­verðlauna Vísinda- og tækniráðs 2016

18.2.2016

Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs eru árlega veitt vísindamanni sem snemma á ferlinum þykir hafa skarað fram úr og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi sem styrki stoðir mannlífs á Íslandi.

Óskað er eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs 2016 . Verðlaunin eru þrjár milljónir króna.

Tilnefningar geta komið frá öllum sviðum vísinda, tækni og fræða. Tilnefna má vísindafólk sem starfar á Íslandi við háskóla, rannsóknastofnanir, fyrirtæki eða er sjálfstætt starfandi. Öllum, sem eru í aðstöðu til að meta störf einstakra vísindamanna, er heimilt að senda tilnefningar. Ferilskrá vísindamannsins skal fylgja tilnefningu. Hvatningarverðlaunin verða afhent á Rannsóknaþingi Rannís í vor.

Við val á verðlaunahafa er tekið tillit til námsferils viðkomandi vísindamanns, sjálfstæðis, frumleika og árangurs í vísindastörfum að loknu námi; ritsmíða, einkaleyfa og alþjóðasamstarfs, svo og annarra vísbendinga um líklegan árangur af störfum viðkomandi. Sérstaklega er litið til brautryðjendastarfs í vísindum. Þá er litið til faglegs framlags á vinnustað og miðlun
þekkingar til íslensks samfélags. Fimm handhafar verðlaunanna skipa dómnefnd.

Frestur til að skila inn tilnefningum er til og með 1. apríl 2016.

Tilnefningum ásamt ítarlegum upplýsingum um feril tilnefndra skal skilað með tölvupósti til Rannís:   rannis(hja)rannis.is.

Auglýsingin í pdf -formi:

2 x 28 (246 KB)

4 x 15 (239)









Þetta vefsvæði byggir á Eplica