Rannís á Egilsstöðum - Tækifæri og styrkir á sviði menntunar og menningar

17.8.2022

Mennta- og menningarsvið Rannís sækir Egilsstaði heim og býður til hádegisfundar miðvikudaginn 24. ágúst kl. 12:15 – 13:15. Fundurinn fer fram á Austurbrú, Tjarnarbraut 39e.

Markmiðið er að kynna tækifæri sem bjóðast innan evrópskra og norrænna styrkjaáætlana, svo sem Erasmus+, áætlunar ESB fyrir öll skólastig og æskulýðsmál, Creative Europe, kvikmynda- og menningaráætlunar ESB, Nordplus, menntaáætlunar Norrænu ráðherranefndarinnar, og Uppbyggingarsjóðs EES, auk þess sem fleiri leiðir til evrópsks samstarfs verða kynntar.

Við hvetjum sveitarfélög, skóla, fræðsluaðila, menningarstofnanir, æskulýðsgeirann, fyrirtæki, ungt fólk og öll önnur sem áhuga hafa á alþjóðasamstarfi að nýta tækifærið og taka þátt. Starfsfólk okkar verður svo til taks eftir kynningarnar fyrir þau sem vilja ræða möguleikana í norrænu og evrópsku samstarfi nánar.

Einnig munum við bjóða upp á að horfa í streymi og gefst svo fólki tækifæri að senda inn skriflegar spurningar til okkar.

Við munum bjóða upp á gómsæta súpu og því biðjum við fólk að skrá þátttöku sína hér: 

Skrá þátttöku

Allar nánari upplysingar veitir Eva Einarsdóttir kynningarfulltrúi: eva.einarsdottir(hja)rannis.is , sími: 691 3351.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica