Rannís auglýsir eftir styrkumsóknum í Hljóðritasjóð

7.7.2017

Hlutverk Hljóðritasjóðs er að efla hljóðritun á íslenskri tónlist. Veittir eru styrkir til að taka upp nýja, frumsamda íslenska tónlist og þannig er stutt við nýsköpun hennar.

Hljóðritin skulu kostuð af íslenskum aðilum en mega einnig vera samstarfsverkefni við erlenda aðila.

Styrkir eru veittir til ákveðinna verkefna að hámarki til eins árs.

Umsóknarfrestir eru tvisvar á ári, 15. mars og 15. september.

Næsti umsóknarfrestur rennur út kl. 16:00, 15. september. 

Nánari upplýsingar og umsóknargögn

Umsóknum og lokaskýrslum skal skila á rafrænu formi.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica