Rannís auglýsir eftir umsóknum í Vinnustaðanámssjóð

2.4.2019

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Vinnustaðanámssjóð og er umsóknarfrestur til 19. nóvember 2019, kl. 16:00.

  • Vinnustadanamssjodur

Vinnustaðanámssjóður veitir styrki til fyrirtækja og stofnana vegna vinnustaðanáms og starfsþjálfunar sem er skilgreindur hluti af starfsnámi samkvæmt aðalnámsskrá framhaldsskóla.

Markmið sjóðsins er að hvetja fyrirtæki og stofnanir til að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi. 

Umsóknarfrestur fyrir árið 2019 er til 19. nóvember 2019.

Sótt er um rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís:


Nánari upplýsingar veitir Skúli Leifsson:  Skúli Leifsson

Lesa um Vinnustaðanámssjóð









Þetta vefsvæði byggir á Eplica