Rannís auglýsir eftir umsóknum um sóknarstyrki til undirbúnings umsókna í alþjóðlega rannsóknasjóði

10.11.2016

Stjórnir Rannsóknasjóðs og Tækniþróunarsjóðs hafa ákveðið að leggja til allt að 20 m.kr. á árinu 2016 til að styrkja undirbúning alþjóðlegs vísinda- og þróunarsamstarfs með íslenskri þátttöku.

Forgangur er veittur umsóknum vegna undirbúnings umsókna í Horizon 2020 rannsóknaráætlun ESB, en mögulegt er að styrkja annað samstarf samkvæmt ákvörðun stjórnar sjóðsins.

Sótt er um rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís.

Umsóknarfrestur er til 21. nóvember 2016 kl. 17:00.

Allar nánari upplýsingar.










Þetta vefsvæði byggir á Eplica