Rannís heimsækir Húsavík - Tækifæri og styrkir á sviði menntunar og menningar

26.10.2022

Mennta- og menningarsvið Rannís býður til hádegisfundar miðvikudaginn 2. nóvember kl. 12:00-13:15. Fundurinn fer fram á Fosshótel Húsavík.

Markmiðið er að kynna tækifæri sem bjóðast innan evrópskra og norrænna styrkjaáætlana, svo sem Erasmus+ áætlunar ESB fyrir öll skólastig og æskulýðsmál, Creative Europe kvikmynda- og menningaráætlunar ESB, Nordplus menntaáætlunar Norrænu ráðherranefndarinnar og Uppbyggingarsjóðs EES, auk þess sem fleiri leiðir til evrópsks samstarfs verða kynntar.

Við hvetjum sveitarfélög, skóla, fræðsluaðila, menningarstofnanir, æskulýðsgeirann, fyrirtæki, ungt fólk og öll sem áhuga hafa á alþjóðasamstarfi að nýta tækifærið og taka þátt. Starfsfólk okkar verður svo til taks eftir kynningarnar fyrir þau sem vilja ræða möguleikana á evrópsku samstarfi nánar.

Við munum bjóða upp á gómsæta súpu og því biðjum við fólk að skrá þátttöku sína hér.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica