Sérfræðingur í nýsköpunarteymi

11.11.2022

Rannís óskar eftir sérfræðingi í fullt starf í nýsköpunarteymi. Starfið felur í sér umsýslu Tækniþróunarsjóðs, skattfrádráttar rannsókna- og þróunar og annarra minni sjóða. Umsóknarfrestur var til og með 24. nóvember 2022 og er umsóknarferli í gangi.

  • Picture-2-nyskopunarteymi

Starfið felur í sér vinnu í nýsköpunarteymi rannsókna- og nýsköpunarsviðs Rannís þar sem stærstu verkefnin eru rekstur Tækniþróunarsjóðs og skattfrádráttar rannsókna- og þróunar. Einnig kæmi starfsmaður að umsýslu annarra minni sjóða sem heyra undir nýsköpunarteymi. Verkefni starfsmanns felast m.a. í kynningum, samskiptum og upplýsingagjöf við umsækjendur, umsjón fagráða, samningagerð og greiðslum til styrkþega, auk yfirferðar umsókna í skattfrádrátt.


Menntunar- og hæfniskröfur: 

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, meistarapróf á sviði raunvísinda eða verkfræði er kostur
  • Þekking á íslensku rannsókna- og nýsköpunarumhverfi
  • Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði tal- og ritmáli
  • Sjálfstæð, öguð og nákvæm vinnubrögð ásamt góðri samskiptafærni 
  • Mjög góð færni í töflureikni ásamt færni í helstu Office forritum eða sambærilegu
  • Metnaður til að ná árangri í starfi með því að sýna vönduð vinnubrögð, frumkvæði og veita góða þjónustu

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurður Óli Sigurðsson, sviðsstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs, í síma 515 5802 eða í tölvupósti.

Umsóknarfrestur var til og með 24. nóvember 2022 og er umsóknarferli í gangi.

Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum.

Við ráðningu í starfið er tekið mið af jafnréttisstefnu Rannís og fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt viðeigandi kjarasamningi við fjármálaráðuneytið.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.

Rannís er líflegur vinnustaður með rúmlega 60 sérfræðingum sem starfa eftir gildum stofnunarinnar: Áhrif, fagmennska og samstarf. Hlutverk Rannís er að treysta stoðir íslensks samfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu og styðja þekkingarsamfélagið með rekstri samkeppnissjóða, aðstoð og kynningu á alþjóðlegum sóknarfærum og samstarfsmöguleikum. Rannís greinir og kynnir áhrif rannsókna, menntunar og menningar á þjóðarhag og þjónustar undirbúning vísinda- og tæknistefnu.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica