Sjálfbær þróun á norðurslóðum, nýtt NordForsk kall

13.3.2024

Norðurlöndin hafa tekið höndum saman við Kanada og Bandaríkin og auglýsa nýtt NordForsk kall um sjálfbæra þróun á norðurslóðum (Sustainable Development of the Arctic). Um er að ræða tveggja þrepa umsókn og frestur til að skila inn umsókn á fyrra þrep er til og með 4. júní 2024.

Markmið:

Meginmarkið kallsins er að styðja við rannsóknarsamstarf þátttökulanda á norðurslóðum með það að leiðarljósi að tryggja sjálfbæra þróun á svæðinu. Lögð er áhersla á að fjármagna þverfagleg rannsóknarverkefni þar sem möguleikar eru á að samfélagsleg áhrif verði umtalsverð.
Kallið er ekki þematengt en þrjú lykilorð eru mikilvæg fyrir umsækjendur að hafa í huga; öryggi, náttúruauðlindir og/eða samfélagsbreytingar.

Nánari upplýsingar á vef NordForsk

  • Áhugasömum umsækjendum er bent á að þann 19. mars frá 14:00-15:00 að íslenskum tíma verður haldin vefstofa um kallið:
    Skráning á vefstofu
  • Ef þú vilt komast í samband við aðra áhugasama umsækjendur skaltu skrá þig á tengiliðalista kallsins:
    Skráning á tengiliðalista

English









Þetta vefsvæði byggir á Eplica