Skráning opin fyrir sýnendur á Vísindavöku 2022

15.8.2022

Opnað hefur verið fyrir skráningu sýnenda og þátttakenda á Vísindavöku Rannís, sem haldin verður laugardaginn 1. október 2022. Frestur til að senda inn skráningu er til 26. ágúst nk.

  • Visindavaka-2019-190

Vísindavaka verður haldin 1. október 2022  kl. 13:00-18:00 í Laugardalshöllinni. Þema Vísindavökunnar í ár er Framtíðin og verður þáttakendum boðið að miðla því hvað framtíðin ber í skauti sér innan allra greina rannsókna.

Stofnanir, háskólar og fyrirtæki eru hvött til að skrá þátttöku sem fyrst.

Vinsamlega skráið ósk um þátttöku í þessum tengli fyrir 26. ágúst nk. Athugið að Rannís áskilur sér rétt til að velja eða hafna þátttakendum og stýra uppröðun eftir aðstöðu.

Hægt er að taka þátt sem sýnandi og/eða vísindamiðlari, senda okkur hugmynd sem gæti verið hluti af hátíðarhöldunum og leggja til fræðafólk, rannsóknir eða verkefni sem áhugavert gæti verið að kynna fyrir almenningi.

Rannís hefur umsjón með Vísindavöku á Íslandi, en verkefnið er m.a. styrkt af Horizon Europe rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB. Allar nánari upplýsingar um Vísindavökuna má fá hjá Rannís í netfanginu visindavaka@rannis.is

Athugið að Vísindavaka er ætluð til að kynna rannsóknir og nýsköpun á lifandi hátt en ekki að vera almenn kynning á skólum, stofnunum eða fyrirtækjum.

Annars vegar verður boðið upp á kynningar á sýningarbásum með þátttöku gesta og hins vegar beina vísindamiðlun og eru þátttakendur hvattir til að nota aðstöðuna til að koma rannsóknum sínum á framfæri við almenning á gagnvirkan og skemmtilegan hátt. Vísindavakan snýr nú aftur eftir covid og er von okkar að hún veki áhuga og athygli almennings jafnt sem fjölmiðla.

Í tengslum við Vísindavöku verður boðið upp á Vísindakaffi dagana 27., 28. og 29. september. Einnig verður boðið til vísindamiðlunar föstudaginn 30. september auk þess sem viðurkenning Rannís fyrir vísindamiðlun verður veitt. Nánar um það síðar!

Ekkert gjald er tekið fyrir þátttöku eða sýningarpláss á Vísindavöku. Þátttakendur sem þess óska fá sýningarbás merktan nafni stofnunar, fyrirtækis eða háskóla. Í boði eru tilbúnir básar eða pláss fyrir eigin kynningarbása allt frá ca. 2 fm til 8 fm á þátttakanda/verkefni. Kynningarborð, 1 x 0,5 m að stærð fylgir með básum. Hægt er að leigja aukaborð af ýmsu tagi, stóla, bæklingastanda eða annað slíkt á kostnað sýnenda. Sjá nánar um aðföng á www.syning.is. Aðgangur verður að rafmagni og þráðlausu neti. Tilboða verður leitað til leigu á tæknibúnaði, svo sem stórum skjám.

Vísindavakan er haldin samtímis í helstu borgum Evrópu til heiðurs evrópsku vísindafólki. Markmiðið er að vekja áhuga almennings á vísindum og nýsköpun og kynna fólkið sem stendur að baki þeim. Þar fær fólk af öllum fræðasviðum tækifæri til að koma sér og rannsóknum sínum á framfæri á auðskiljanlegan og skemmtilegan hátt, enda á Vísindavakan að höfða til alls almennings, ekki síst til fjölskyldna, barna og ungmenna. Allar vísindagreinar eiga heima á Vísindavöku, hugvísindi jafnt sem raunvísindi.

Hlökkum til góðrar samvinnu á Vísindavöku 2022!









Þetta vefsvæði byggir á Eplica