Starfslaun listamanna 2017

17.8.2016

Auglýst eru til umsóknar starfslaun listamanna sem úthlutað verður árið 2017 í samræmi við ákvæði laga nr. 57/2009. Umsóknarfrestur er til og með 30. september, kl. 17:00.

Starfslaun eru veitt úr sex sjóðum, þeir eru:

  • launasjóður hönnuða

  • launasjóður myndlistarmanna

  • launasjóður rithöfunda

  • launasjóður sviðslistafólks

  • launasjóður tónlistarflytjenda

  • launasjóður tónskálda

    Umsóknir skiptast í eftirfarandi flokka:

  • Starfslaun fyrir einn listamann í einn launasjóð – eða fleiri, falli vinnan undir fleiri en einn sjóð

  • Starfslaun fyrir skilgreint samstarf listamanna í einn launasjóð – eða fleiri, falli vinnan undir fleiri en einn sjóð

  • Starfslaun fyrir sviðslistahópa – athugið að sú breyting hefur verið gerð að sviðslistahópa-umsókn er felld inn í atvinnuleikhópa-umsókn.

    Umsókn um starfslaun, lög og reglugerðir eru á vefslóðinni www.listamannalaun.is. Nota þarf íslykil / rafræn skilríki við umsóknina.

    Breytingar frá síðustu úthlutun

  • Ekki er tekið við umsóknum um ferðastyrki.

  • Eingöngu verður tekið við rafrænum fylgigögnum í gegnum umsóknarkerfið. Ekki er hægt að skila gögnum á skrifstofu Rannís.

Umsóknarfrestur rennur út 30. september 2016 kl. 17:00.

Hafi umsækjandi hlotið starfslaun áður, verður umsókn því aðeins tekin til umfjöllunar að framvinduskýrslu vegna fyrri starfslauna hafi verið skilað til stjórnar listamannalauna, sbr. ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr. 57/2009.

Samkvæmt 3. gr. laga nr. 57/2009 er stjórn listamannalauna heimilt að færa umsókn á milli sjóða. Slíkt verður einungis gert í samráði við umsækjanda. Sé um að ræða umsókn í fleiri sjóði en einn fara úthlutunarnefndir viðkomandi sjóða sameiginlega yfir umsókn.

Upplýsingar um listamannalaun, lög og reglugerð er að finna í þessum tengli.

Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Zoëga á skrifstofu Rannís.

Stjórn listamannalauna, ágúst 2016









Þetta vefsvæði byggir á Eplica