Starfslaun listamanna 2020

20.8.2019

Auglýst eru til umsóknar starfslaun listamanna sem úthlutað verður árið 2020 í samræmi við ákvæði laga nr. 57/2009.

  • Launasjodur-listamannalauna

Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2019.

Úthlutað verður úr eftirfarandi sjóðum:

  • launasjóður hönnuða
  • launasjóður myndlistarmanna
  • launasjóður rithöfunda
  • launasjóður sviðslistafólks
  • launasjóður tónlistarflytjenda
  • launasjóður tónskálda

Vakin er athygli á að áfram verður hægt að fella sviðslistaumsóknir inn í atvinnuleikhópaumsóknir.

Hafi umsækjandi hlotið starfslaun áður, verður umsókn aðeins tekin til umfjöllunar ef framvinduskýrslu vegna síðustu úthlutunar hefur verið skilað til stjórnar listamannalauna, sbr. ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr. 57/2009. 

Umsóknareyðublöð og eyðublöð fyrir framvinduskýrslu ásamt lögum og reglugerðum um sjóðinn og stefnu stjórnar, má finna á vefslóðinni  www.listamannalaun.is

Nota þarf rafræn skilríki við umsóknina og þarf hver umsækjandi að skila inn umsókn, hvort sem um er að ræða einstaklings- eða samstarfsverkefni. Eingöngu verður tekið við rafrænum fylgigögnum.

Nánari upplýsingar veita Ragnhildur Zoëga og Guðmundundur Ingi Markússon á skrifstofu Rannís.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica