Starfslaun listamanna 2023

15.8.2022

Auglýst eru til umsóknar starfslaun listamanna sem úthlutað verður árið 2023 í samræmi við ákvæði laga nr. 57/2009 . Opið er fyrir umsóknir til 3. október 2022 kl. 15:00.

  • LL_logo_blk_screen

Samkvæmt lögum um listamanna­laun eru til úthlutunar 1600 mánaðarlaun (133,3 árslaun):

  • 50 mánuðir úr launasjóði hönnuða (4,2 árslaun)
  • 435 mánaðarlaun úr launasjóði myndlistarmanna (36,3 árslaun)
  • 555 mánaðarlaun úr launasjóði rithöfunda (46 árslaun)
  • 190 mánaðarlaun úr launasjóði sviðslistafólks (15,8 árslaun)
  • 180 mánaðarlaun úr launasjóði tónlistarflytjenda (15 árslaun)
  • 190 mánaðarlaun úr launasjóður tónskálda (15,8 árslaun)

Í umsóknum er óskað eftir:

  • lýsingu á vinnu og listrænu gildi verkefna (50% vægi)
  • ferli umsækjenda (30% vægi)
  • verk- og tímaáætlun (20% vægi)

Umsóknir eru einstaklingsumsóknir og nota þarf rafræn skilríki við gerð þeirra.
Sviðslistahópar sækja um í launasjóð sviðslistafólk í gegnum umsókn Sviðslistasjóðs.

Ef við á þarf að tilgreina umsóknarnúmer samtarfslistamanna í umsóknum.

Hafi umsækjandi hlotið starfslaun áður, verður umsókn aðeins tekin til umfjöllunar ef framvinduskýrslu/lokaskýrslu hefur verið skilað sbr. ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr. 57/2009.

Á vef listamannalauna eru umsóknar- og skýrsluform, matskvarði, áherslur stjórnar, lög og reglugerð og leiðbeiningar um gerð umsókna.

Hægt er að senda fyrirspurn á: listamannalaun(hja)rannis.is.

Listamenn eru hvattir til að skila umsóknum tímanlega en umsóknarfrestur rennur út 3. október 2022 kl. 15:00.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica