Styrkir úr Sviðslistasjóði fyrir leikárið 2022/2023

17.8.2021

Sviðslistaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Sviðslistasjóði fyrir leikárið 2022/23 samkvæmt lögum um sviðslistir 2019 nr.165 .

Í umsókn er beðið um lýsingu á verki, verk- og tímaáætlun, fjárhagsáætlun og upplýsingar um þátttakendur og umsóknaraðila. Umsókn atvinnusviðslistahópa getur einnig gilt sem umsókn í Launasjóð listamanna. Vakin er athygli á nýju formi fyrir fjárhagsáætlun sem skal fylgja umsókn. Fylgigögnum skal skila með rafrænni umsókn til Rannís.

Umsóknarfrestur rennur út 4. október 2021 kl. 15:00.

Umsóknum skal skilað rafrænt. Aðgangur að umsóknarkerfi, eyðublöðum fyrir skýrslur, matskvarða, ásamt lögum og reglugerðum um sjóðinn, stefnu stjórnar o.fl., er að finna á síðu sjóðsins

Nánari upplýsingar veita Óskar Eggert Óskarsson og Ragnhildur Zoëga: svidslistasjodur@rannis.is









Þetta vefsvæði byggir á Eplica