Til hamingju með daginn vísindafólk!

30.9.2022

Vísindin lifna við á Vísindavöku Rannís á morgun, laugardaginn 1. október kl. 13:00-18:00 í Laugardalshöllinni. Á Vísindavöku finna allir eitthvað við sitt hæfi og er fólk á öllum aldri boðið velkomið, en markmiðið er að almenningur fái tækifæri til að spjalla við vísindafólk um viðfengsefni þess. Aðgangur er ókeypis og margt spennandi að sjá og reyna á Vísindavöku!

Finnst þér gaman að fikta og prófa alls konar hluti og færðast um hvernig hlutirnir virka? Viltu vita hvernig eldgos eru vöktuð, prófa að búa til tölvuleik, fylgjast með þrívíddaprentun líffæra, hitta lifandi maura og fræðast um geimbíla og svarthol? 

Þá skaltu koma á Vísindavökuna þar sem þú getur hitt okkar fremsta vísindafólk!

Vísindavakan hefst kl. 13:00 með afhendingu viðurkenningar Rannís fyrir vísindamiðlun. Sprengju-Kata mun svo sprengja Vísindavökuna í gang! Að setningu lokinni opnar sýningarsvæðið með lifandi vísindamiðlun þar sem gestir geta fundið eitthvað skemmtilegt og skrýtið fyrir alla aldurshópa.

Skoða sýnendur

Vísindin lifna við á Vísindavöku!

Á Vísindavökunni kynnir fræðafólk frá háskólum, stofnunum og fyrirtækjum viðfangsefni sín fyrir almenningi á lifandi og skemmtilegan hátt. Gestir fá að skoða og prófa ýmis tæki og tól sem notuð eru við rannsóknir, kynnast ýmsum afurðum og spjalla við vísindafólkið sjálft um hvernig er að starfa að vísindum, rannsóknum og nýsköpun. Lögð er áhersla á lifandi vísindamiðlun og virka þátttöku gesta og eru börn og ungmenni sérstaklega boðin velkomin á Vísindavöku.

Vísindavaka um alla Evrópu

Vísindavaka er haldin síðustu helgina í september í 340 borgum og bæjum í 25 löndum um alla Evrópu til heiðurs evrópsku vísindafólki. Vísindavaka er styrkt af Horizon Europe rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica