Tökum við netárásir alvarlega? Netárásir og áfallaþol á tímum stafrænna ógna

9.4.2024

Netöryggisfyrirtækið Defend Iceland, ásamt Rannís, Háskólanum í Reykjavík og Miðstöð stafrænnar nýsköpunar (EDIH-IS), efnir til hádegisfundar fimmtudaginn 11. apríl í Fenjamýri í Grósku þar sem sjónum verður beint að forvirkum netöryggisráðstöfunum.

  • Defend-Iceland-Vidburdur-11.-apr.24

English version

Netárásum skipulagðra glæpahópa fjölgar hratt og hart er sótt að fyrirtækjum og stofnunum á netinu. Ekkert okkar vill lenda í næstu stóru netárás og gagnagíslatöku, hvað þá að verða fréttaefni í kjölfar slíkrar árásar. Hvernig getum við komist hjá því að verða fyrir slíkum árásum og hvernig lágmörkum við tjón af þeim árásum sem gerðar verða?

Netöryggisfyrirtækið Defend Iceland, ásamt Rannís, Háskólanum í Reykjavík og Miðstöð stafrænnar nýsköpunar (EDIH-IS), efnir til hádegisfundar, fimmtudaginn 11. apríl í Fenjamýri í Grósku kl. 11:45 til 13:00, þar sem sjónum verður beint að forvirkum netöryggisráðstöfunum. 

Skráðu þig á viðburðinn 

Á fundinum mun Jacky Mallett, dósent við tölvunarfræðideild HR, fjalla um netglæpahópinn Akira, sem ber ábyrgð á fjölda alvarlegra árása á Íslandi undanfarið og nú síðast árásinni á Háskólann í Reykjavík. Í erindinu fer Jacky meðal annars yfir skipulagða glæpastarfsemi netárásarhópa, hvaðan þeir koma og til hvaða aðgerða fyrirtæki geti gripið svo þau lendi ekki í klóm árásarhópa.

Þá mun Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðuleika, ræða aðgerðir Seðlabanka Íslands til að tryggja fjármálastöðugleika í umhverfi þar sem netárásum fjölgar hratt.

Guðmundur Karl Karlsson hjá Íslandsbanka deilir reynslu bankans af notkun forvirkra öryggisráðstafana, ásamt því að ræða örugga forritun og mikilvægi þess að stjórnendur fyrirtækja taki netöryggi alvarlega.

Fundarstjóri er Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, stjórnandi viðskiptaþróunar, sölu- og markaðsmála hjá Defend Iceland.

Boðið verður upp á léttan hádegisverð.

Skráðu þig á viðburðinn 









Þetta vefsvæði byggir á Eplica