Umsóknarfrestur framlengdur í Jules Verne, vísinda- og tæknisamstarf Íslands og Frakklands

17.9.2021

Auglýst er eftir umsóknum um styrki til vísinda- og tæknisamstarfs milli íslenskra og franskra aðila á grundvelli Jules Verne samstarfssamningsins. Mennta- og menningarmálaráðuneytið stýrir samstarfinu fyrir hönd Íslands en Rannís sér um framkvæmd verkefnisins. Umsóknarfrestur hefur verið framlendur til 22. september.

Tilgangurinn með þessu tvíhliða samstarfi milli Íslands og Frakklands er að virkja vísinda- og tæknisamstarf milli stofnana, skóla og rannsóknahópa í báðum löndunum og auðvelda samstarf við önnur slík samstarfsverkefni í Evrópu.

Umsóknarfrestur er til 22. september 2021 kl. 15:00.

Svör við umsóknum og niðurstöður vegna styrkveitingar verða kynntar eigi síðar en í lok desember 2021

Veittir eru styrkir að upphæð 650.000 kr. sem eru ætlaðir til að greiða ferða- og dvalarkostnaðar fyrir vísindamenn til gagnkvæmra heimsókna á árunum 2022-2023.

Vísindamenn á öllum sviðum grunnvísinda og hagnýtra rannsókna geta sótt um, en sérstakar áherslur á ákveðin fræðasvið eru kynntar hverju sinni. Rannsóknastofnanir og rannsóknahópar á háskólastigi geta sótt um. Virk þátttaka ungra vísindamanna, þ.e. doktorsnema eða þeirra sem nýlega hafa lokið doktorsnámi er eitt af þeim skilyrðum sem verkefnin þurfa að uppfylla til að hljóta styrk. 

Stofnanir sem eiga í samstarfi er gert að leggja inn hver fyrir sig umsókn til þeirra aðila sem hafa yfirumsjón í hvoru landi fyrir sig. Aðeins koma til greina umsóknir sem eru lagðar fram af báðum aðilum.

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublað er hægt að nálgast á síðu sjóðsins.

Umsjón með Jules Verne hjá Rannís hefur Elísabet M. Andrésdóttir, netfang: elisabet.andresdottir@rannis.is, sími 515 5809









Þetta vefsvæði byggir á Eplica