Uppbyggingarsjóður EES í Rúmeníu auglýsir eftir umsóknum

11.10.2021

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í flokknum viðskiptaþróun, nýsköpun og lítil og meðalstór fyrirtæki. Umsóknarfrestur er til og með 18. nóvember 2021.

  • EEA-grants

Markmið áætlunarinnar er að styðja við lítil og meðalstór fyrirtæki í þróun á nýjum og grænum tæknilausnum, innan bláa hagkerfinu og á sviði upplýsingatækni (ICT).

  • Heildarfjármagn tilvonandi úthlutunar er 1.000.000 evrur.
  • Hámarksstærð verkefna er 200.000 evrur
  • Lágmarksstærð verkefna er 10.000 evrur

Nánari upplýsingar

Föstudaginn 15. október 2021frá kl. 09:00-13:00 að íslenskum tíma verður haldinn vefviðburður og fyrirtækjastefnumót vegna útboðsins.

Skráning

Uppbyggingarsjóði EES er ætlað að styrkja samstarf EES ríkjanna þriggja; Íslands, Liechtenstein og Noregs við 15 móttökuríki.

Bendum á Gagnagrunninn hjá Utanríkisráðuneytinu þar sem áhugasamir um möguleg samstarfsverkefni geta leitað styrkja í Uppbyggingarsjóð EES.

Ef þið/ykkar stofnun/fyrirtæki/félagasamtök hafið áhuga á að bætast við lista áhugasamra samstarfsaðila og setja upplýsingar um ykkur og mögulegar verkefnahugmyndir í grunninn. 









Þetta vefsvæði byggir á Eplica