Upplýsingadagur COST

7.3.2024

Þann 27. mars næstkomandi verður haldinn opinn upplýsingadagur COST á netinu. Tilgangur COST verkefna er að byggja upp samstarfsnet á ákveðnum rannsóknasviðum.

  • COST-info-day

Upplýsingadagurinn er opinn öllum rannsakendum og frumkvöðlum á hvaða fræðasviði sem er, óháð reynslu. Ungt vísindafólk er sérstaklega hvatt til að sitja fundinn. Fundurinn stendur frá 9:00-10:30 að íslenskum tíma

Markmið upplýsingadagsins er að fræða frumkvöðla og alla sem starfa við vísindi með einum eða öðrum hætti um COST hvernig hægt er að tengjast COST verkefnum, leiða verkefni eða skrifa COST umsókn.

Nauðsynlegt er að skrá sig og munu þátttakendur fá sendan Zoom hlekk: 

Skráning

Einnig verður hægt að fylgjast með fundinum á YouTube rás COST

Dagskrá og nánari upplýsingar eru á vef COST

English









Þetta vefsvæði byggir á Eplica