Úthlutun úr Jafnréttissjóði Íslands fyrir árið 2025

23.6.2025

Stjórn Jafnréttissjóðs Íslands hefur lokið úthlutun úr sjóðnum fyrir árið 2025, en umsóknarfrestur rann út 10. apríl síðastliðinn.

Styrkveitingar voru kynntar fimmtudaginn 19. júní í Hannesarholti, Grundarstíg 10, 101 Reykjavík, þar dómsmálaráðherra, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, veitti styrkina við formlega athöfn.

Markmið  Jafnréttissjóðs er að styrkja verkefni og rannsóknir sem miða að því að efla jafnrétti kynjanna í íslensku samfélagi og á alþjóðavísu, en sjóðurinn var stofnaður í tilefni af 100 ára kosningaréttarafmæli íslenskra kvenna árið 2015.

Alls bárust 69 umsóknir í sjóðinn að þessu sinni. Úthlutað var rúmum 50 milljónum króna til 10 verkefna.

Rannsóknaverkefni

Berglind Hólm Ragnarsdóttir 

Verkakonur vellíðan og velferðarkerfið

         5.451.635 

Katrín Pálmad. Þorgerðardóttir

Siðfræði nándar: ungt fólk, samþykki og mörk í kjölfar MeToo

6.957.000

Háskólinn í Reykjavík ehf.

Er kynjamunur í frásögnum af kynferðisofbeldi, félagslegum viðbrögðum og áhrifum á geðheilsu?

6.962.400

Sólveig B Sveinbjörnsdóttir

Reynsla og aðstæður innflytjenda og áhrif þeirra á barneignir og fjölskyldulíf á Íslandi

1.920.000

Drífa Jónasdóttir

Birtingarmynd ofbeldis á Bráðamóttöku Landspítala

5.400.000

Karítas Hrundar Pálsdóttir

Ritlist til inngildingar

6.000.000

Dalrún Kaldakvísl Eygerðardóttir

Heimildamyndin Huldufreyjur

3.000.000

Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson

Hvað á baráttan að heita? Woke, anti-woke og réttlætisbarátta á Íslandi

6.999.850

Katrín Ólafsdóttir

Drengjaorðræða og kynjuð samskipti á vettvangi skóla

6.999.992

Kynningar- og fræðsluverkefni


Nanna Kristjánsdóttir            

Stelpur diffra                                                                            

1.000.000










Þetta vefsvæði byggir á Eplica