Úthlutun úr Nýsköpunarsjóði námsmanna 2016

22.3.2016

Stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna hefur lokið úthlutun fyrir sumarið 2016. Nýsköpunarsjóði námsmanna bárust alls 254 umsóknir í ár fyrir 377 háskólanema. Umsóknarfrestur rann út 10. febrúar síðastliðinn. Alls var sótt um rúmlega 250 milljónir króna eða laun í 1074 mannmánuði.

Að þessu sinni hafði sjóðurinn um 71 milljón króna til úthlutunar og hlutu alls 67 verkefni styrk (árangurshlutfall miðað við fjölda umsókna og veitta styrki er því 26,4%). Í styrktum verkefnum eru 108 nemendur skráðir til leiks í alls 305 mannmánuði.

Allir umsækjendur fá tölvupóst með nánari upplýsingum um styrkveitinguna. Sá listi sem birtur er hér er yfir þau verkefni sem hljóta styrk árið 2016. Listinn er birtur með fyrirvara um villur. 

Verkefnin eru skráð eftir nafni umsjónarmanns og titli verkefnis ásamt upplýsingum um aðsetur umsjónarmanns og þá upphæð sem verkefnið hlýtur í styrk.

Listi yfir þau verkefni sem hlutu styrk









Þetta vefsvæði byggir á Eplica