Fyrri úthlutun úr Nýsköpunarsjóði námsmanna 2020

17.4.2020

Stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna hefur lokið fyrri úthlutun fyrir sumarið 2020.

Nýsköpunarsjóði námsmanna bárust alls 189 umsóknir í ár fyrir 281 háskólanema. Umsóknarfrestur rann út 5. febrúar 2020. Alls var sótt um rúmlega 243 milljónir króna eða laun í 811 mannmánuði.

Að þessu sinni hafði sjóðurinn um 106 milljónir króna til úthlutunar og hlutu alls 74 verkefni styrk (árangurshlutfall miðað við fjölda umsókna og veitta styrki er því 39,1 %). Í styrktum verkefnum eru 126 nemendur skráðir til leiks í alls 353 mannmánuði. 

„Breiddin í þessum spennandi verkefnum er til marks um fjölbreytileika íslenska menntakerfisins og nýsköpunarkraftinn meðal stúdenta. Verkefni sem komast á laggirnar fyrir tilstuðlan Nýsköpunarsjóðs námsmanna geta blómstrað og breyst í stærri og viðameiri tækifæri fyrir námsmenn, fyrirtæki og stofnanir. Þannig er sjóðurinn mikilvæg brú fyrir atvinnulífið og vísindasamfélagið,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Allir umsækjendur fá tölvupóst með nánari upplýsingum um úthlutunina. Sá listi sem birtur er hér er yfir þau verkefni sem hljóta styrk árið 2020. Listinn er birtur með fyrirvara um villur.

Verkefnin eru skráð eftir nafni umsjónarmanns og titli verkefnis ásamt upplýsingum um aðsetur umsjónarmanns og þá upphæð sem verkefnið hlýtur í styrk.

Sækja úthlutunartöflu (pdf)









Þetta vefsvæði byggir á Eplica