Úthlutun úr Nýsköpunarsjóði námsmanna 2021

26.3.2021

Stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna hefur lokið við úthlutun fyrir sumarið 2021. 

Nýsköpunarsjóði námsmanna bárust alls 642 umsóknir í ár fyrir 950 háskólanema. Umsóknarfrestur rann út 15. febrúar 2021.

Að þessu sinni hafði sjóðurinn um 311 milljónir króna til úthlutunar og hlutu alls 206 verkefni styrk (árangurshlutfall miðað við fjölda umsókna og veitta styrki er því 32%). Í styrktum verkefnum eru 351 nemendur skráðir til leiks í alls 1037 mannmánuði. 

Allir umsækjendur fá tölvupóst með nánari upplýsingum um úthlutunina. Sá listi sem birtur er hér er yfir þau verkefni sem hljóta styrk árið 2021. Listinn er birtur með fyrirvara um villur.

Verkefnin eru skráð eftir umsóknarnúmeri, nafni umsjónarmanns og titli verkefnis ásamt upplýsingum um aðsetur umsjónarmanns og þá upphæð sem verkefnið hlýtur í styrk.

Sækja úthlutunartöflu (PDF)









Þetta vefsvæði byggir á Eplica