Úthlutun úr Rannsóknarsjóði Sigrúnar Ástrósar Sigurðardóttur og Haralds Sigurðssonar fyrir árið 2021

18.5.2021

Stjórn Rannsóknarsjóðs Sigrúnar Ástrósar Sigurðardóttur og Haralds Sigurðssonar hefur lokið úthlutun úr sjóðnum fyrir árið 2021, en umsóknarfrestur rann út 4. maí síðastliðinn.

Markmið sjóðsins er að veita styrki til eflingar rannsóknum á korta- og landfræðisögu Íslands og íslenskri bókfræði og stuðla að útgáfu rita um þau efni.

Alls bárust 10 umsóknir í sjóðinn. Úthlutað var rúmlega 2 milljónum kr. í styrki.

Hér er listi yfir styrkþega*

Titill Nafn Veitt 2021 
Þáttur í íslenskri bókfræði á erlendri grundu: Bréfasafn Sveinbjarnar Egilssonar (1791-1852) Clarence Edvin Glad 700.000 kr.
Kortlagning örnefna og menningar í Surtsey: undirbúningur útgáfu Birna Lárusdóttir 700.000 kr. 
Landfræðileg afmörkun sáttaumdæma á Íslandi 1798-1936: Tilurð og þróun Vilhelm Vilhelmsson 700.000 kr. 
  Samtals: 2.100.000 kr. 


*Listinn er birtur með fyrirvara um villur.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica