Úthlutun úr Rannsóknarsjóði Sigrúnar Ástrósar Sigurðardóttur og Haralds Sigurðssonar fyrir árið 2025
Stjórn Rannsóknarsjóðs Sigrúnar Ástrósar Sigurðardóttur og Haralds Sigurðssonar hefur lokið úthlutun úr sjóðnum fyrir árið 2025, en umsóknarfrestur rann út 5. maí síðastliðinn.
Markmið sjóðsins er að veita styrki til eflingar rannsókna á korta- og landfræðisögu Íslands og íslenskri bókfræði og stuðla að útgáfu rita um þau efni.
Alls bárust sjö umsóknir í sjóðinn og var 3,8 milljónum króna úthlutað.
Listi yfir styrkþega*
Nafn | Heiti verkefnis | Veitt kr. |
Katelin Marit Parsons | Aftur að Recensus: Skýringar við rithöfundatal Páls Vídalíns | 1.000.000 |
María Helga Guðmundsdóttir | Kortlagning kortlögð: Þróun kortasjár út frá vettvangsathugunum jarðfræðingsins George P. L. Walker | 1.000.000 |
Ása Bergný Tómasdóttir | Íslensk framburðartilbrigði í stað og tíma | 500.000 |
Silja Pálmarsdóttir | Bókaskrá Listasafn Einars Jónssonar - skráning og rannsókn | 300.000 |
Einar Skúlason | Gamlar þjóðleiðir í Borgarfirði: Kortlagning, sagnir og staðhættir | 500.000 |
Steingrímur Jónsson | Þýðing og undirbúningur útgáfu á prentsmiðjusögu sr. Gunnars Pálssonar, Typographia Islandica | 400.000 |
Áslaug Agnarsdóttir | Rannsókn á gögnum Jóns Borgfirðings fræðimanns | 100.000 |
Samtals | 3.800.000 |
*Listinn er birtur með fyrirvara um villur.