Úthlutun úr Sprotasjóði 2025
Sprotasjóður leik-, grunn- og framhaldsskóla hefur úthlutað styrkjum ársins 2025.
Sprotasjóður leik- grunn- og framhaldsskóla hefur úthlutað 80,8 m.kr. til 30 skólaþróunar-verkefna fyrir skólaárið 2025–2026. Mennta- og barnamálaráðherra, Guðmundur Ingi Kristinsson, og formaður stjórnar sjóðsins, Bragi Þór Svavarsson, afhentu styrkina við hátíðlega athöfn í mennta- og barnamálaráðuneytinu miðvikudaginn 11. júní.
Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik- grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga. Umsýsla er hjá Rannís. Áherslusvið sjóðsins árið 2025 voru:
- Leikurinn sem leið til náms.
- Gervigreind.
- Grunnþáttur menntunar - Læsi.
Samtals bárust sjóðnum 61 umsóknir að undangenginni auglýsingu. Samanlagðar fjárbeiðnir námu alls 204,4 m.kr.
Á gagnatorgi Rannís er hægt að sjá yfirlit styrktra verkefna Sprotasjóðs og nánari upplýsingar um hvert verkefni með því að velja númer verkefnis fremst í töflu.
Á gagnatorgi Rannís er einnig hægt að nálgast upplýsingar um styrk verkefni Sprotasjóðs frá 2022 og stutt lýsing úr lokaskýrslu birtist eftir að verkefni er lokið.
Eftirfarandi verkefni hlutu styrk árið 2025*:
Styrkþegi | Heiti verkefnis | Úthlutaður styrkur |
Hrafnagilsskóli | Bókmenntahátíð barnanna | 7.000.000 kr. |
Reykjavíkurborg. Fellaskóli og leikskólarnir Holt og Ösp | Málþroski og læsi - virkja þátttöku foreldra | 6.800.000 kr. |
Hólabrekkuskóli | Lestur til árangurs | 5.390.000 kr. |
Kennarafélagið ehf. og leikskólinn Aðalþing | Snjallmatsferli – AI sem styður þróun leikskóla | 5.000.000 kr |
Reykjanes jarðvangur ses. í viðtæku samstarfi við skóla | Gárur á Reykjanesinu - Nærumhverfi til útikennslu | 4.700.000 kr |
Menntaskólinn við Sund | Grípum tækifærið - gervigreind í skólastarfi | 4.400.000 kr. |
Borgarhólsskóli | Lítil skref á leið til læsis | 4.300.000 kr. |
Hafnarfjarðarkaupstaður og grunnskólar bæjarins | Lestrarhvatning til lestraráhuga og námsárangurs | 3.800.000 kr. |
Kvennaskólinn í Reykjavík | Rafrænn aðstoðarkennari í efnafræði | 3.600.000 kr. |
Leikfélag Reykjavíkur ses. í samsatrf við Breiðagerðisskóla og Seljaskóla | Léttir leiklistarsmiðja | 3.108.000 kr. |
Fjölbrautaskóli Snæfellinga | Innleiðing gervigreindar | 3.000.000 kr. |
Samskiptamiðstöð heyrnarlausra í samvinnu við leikskólann Sólborg | Læsi á íslensku táknmáli - ÍTM söguskjóða | 2.841.000 kr. |
Borgarbyggð. Grunnskóli Borgarbyggðar og leikskólinn Hnoðraból | Leikið til færni | 2.654.000 kr. |
Hjallastefnan ehf. og leikskólinn Völlur | Tungumál til framtíðar - Grunnur að læsi | 2.500.000 kr. |
Grunnskóli Akraness | Flug/Flugáætlun | 2.500.000 kr. |
Húnabyggð og Húnaskóli | Læsi fyrir lífið | 2.500.000 kr. |
Múlaþing í samvinnu við sjö leikskóla | Með leikinn að leiðarljósi | 2.330.000 kr. |
Sveitarfélagið Árborg og Vallaskóli Selfossi | Læsi fyrir lífið | 2.000.000 kr. |
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ | Fróði og Glóð – Nám á nýjum grunni | 2.000.000 kr. |
Grunnskóli Akraness | Sprotasamstarf á grunnskólastigi | 1.700.000 kr. |
Reykjahlíðarskóli | Jólasveinasmiðjan - Sagnaarfur í Mývatnssveit | 1.500.000 kr. |
Kópavogsbær og Álfhólsskóli | Læsi á miðstigi, vinnum saman | 1.300.000 kr. |
Barnaskólinn á Eyrarb/Stokkseyr | Í leiknum búa töfrarnir | 1.000.000 kr. |
Kópavogsbær. Menntasvið í samvinnu við leik- og grunnskóla | Lestur á mörkum skólastiga | 1.000.000 kr. |
Múlaþing og Grunnskólinn á Egilsstöðum | Aðlögun námsefnis með hjálp gervigreindar | 850.000 kr. |
Grunnskóli Grundarfjarðar | Gleðihlaup Grunnskóla Grundarfjarðar | 770.000 kr. |
Barnaskólinn á Eyrarb/Stokkseyr | Ljóðlína til lífs | 710.000 kr. |
Þingeyjarskóli | Efling læsis á mið- og unglingastigi | 682.000 kr. |
Landakotsskóli ses. | Scriptorium | 630.000 kr. |
Álftamýrarskóli | Pals - læsisvinna í leik og grunnskóla | 250.000 kr. |
*Birt með fyrirvara um villur