Úthlutun úr Starfslaunasjóði sjálfstætt starfandi fræðimanna

16.5.2025

Tilkynnt hefur verið um úthlutun úr Starfslaunasjóði sjálfstætt starfandi fræðimanna fyrir árið 2025, en umsóknarfrestur rann út 17. mars sl.

Veittir voru styrkir til 18 sjálfstætt starfandi fræðimanna til metnaðarfullra verkefna sem spanna vítt svið, eða um 41% umsókna. Starfslaun sjóðsins í ár eru 560.000 kr. á mánuði (um verktakagreiðslur er að ræða). Veittar voru rúmar 45 milljónir, eða 81 mánuður, sem er umtalsvert minna en undanfarin ár.

Alls bárust 44 gildar umsóknir í sjóðinn. Sótt var um starfslaun til 360 mánaða eða tæpar 202 milljóna kr. Þurfti stjórn því að hafna mörgum styrkhæfum verkefnum.

Starfslaunasjóður sjálfstætt starfandi fræðimanna er samkeppnissjóður sem hefur það meginhlutverk að launa starfsemi þeirra fræðimanna sem starfa sjálfstætt í sinni fræðigrein. Rétt til að sækja um starfslaun úr sjóðnum hafa höfundar fræðirita, handbóka, orðabóka og viðamikils upplýsingaefnis á íslensku í ýmsu formi. Styrkflokkar eru fjórir; starfslaun til þriggja, sex, níu eða tólf mánaða.

Styrkþegar

Umsækjandi Heiti verkefnis Úthlutun
Anna Heiða Baldursdóttir Fortíðin í hlutum 6
Atli Antonsson Eldgos – bylting – stríð: rannsókn á myndhverfingu 3
Clarence Edvin Glad Ævisaga Sveinbjarnar Egilssonar (1791-1852) 3
Erla Dóris Halldórsdóttir Berklar á Íslandi 1890–1950 3
Guðrún Schmidt Umbreyting – Handbók fyrir framtíðina 6
Guðrún Sif Friðriksdóttir Friðaraktívistar á Íslandi 6
Gunnar Þorri Pétursson Bakhtínskí búmm: Um ris & fall Míkhaíls Bakhtíns.. 6
Gylfi Björn Helgason Fornar laugar á Vesturlandi 3
Kristín Svava Tómasdóttir Fröken Dúlla. Ævisaga 3
Kristjana Vilhjálmsdóttir Kopar úr kumlum 3
Laufey Axelsdóttir Athafnakonur á Íslandi. Síðari hluti yfirlitsrit 6
Margrét Gunnarsdóttir Móðuharðindin í mannlegu ljósi 6
Ragnhildur Hemmert Sigurðardóttir Litunargjörð III 3
Sigríður Matthíasdóttir Athafnakonur á Íslandi. Fyrri hluti yfirlitsrit 6
Sigrún Margrét Guðmundsdóttir Ástarsagan í kuldanum 6
Skafti Ingimarsson Eldhuginn. Ævisaga Einars Olgeirssonar 1902-1993 3
Valgerður Kr Brynjólfsdóttir Handrit Jóns í Simbakoti 3
Þorsteinn Önnuson Vilhjálmsson Hinn sívakandi eldur 6
Alls mánuðir 81

Upplýsingar eru birtar með fyrirvara um innsláttarvillur.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica