Vel heppnuð Uppskeruhátið íslenskra verkefnaaðila í Uppbyggingarsjóði EES
Uppskeruhátíð Uppbyggingasjóðs EES fyrir tímabilið 2014-2021 sem lauk þó formlega árið 2025 var haldin á Hótel Reykjavík Natura fimmtudaginn 29. apríl 2025. Þar var fagnað góðum árangri á síðasta tímabili sjóðsins og lögð drög að enn frekari samstarfi við viðtökuríki Uppbyggingarsjóðsins víða um Evrópu.
Rúmlega 70 manns mættu á viðburðinn sem var skipulagður af utanríkisráðuneytinu, Rannís og Umhverfis- og orkustofnun.
Meðal þeirra sem fluttu erindi voru Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, og Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu. Í erindum þeirra kom fram að á síðasta sjóðstímabili 2014-2021 tóku 238 íslenskir aðilar þátt í 431 verkefni með tólf löndum. Ekki amalegur árangur þar!
Ásdís Jónsdóttir frá skrifstofu Uppbyggingasjóðs EES (FMO) í Brussel stýrði pallborðsumræðum um árangur íslenskra aðila í rannsóknum, nýsköpun, menntun og menningu á síðasta tímabili.
Þar sögðu Auðbjörg Björnsdóttir, forstöðumaður kennslu- og upplýsingatæknimiðstöðvar Háskólans á Akureyri, Ágústa Kristófersdóttir, framkvæmdastjóri safneignar Þjóðminjasafnsins og Egill Árni Guðnason, jarðeðlisfræðingur, frá jákvæðri reynslu sinni af EES-verkefnum.
Eftir að pallborðinu lauk tróð tónlistarmaðurinn Pétur Ben upp með skemmtilegt atriði. Hann fékk salinn til að syngja með sér í viðlagi við gamla Bee Gees slagarann ,,Staying alive“. En þess má geta að Pétur var þátttakandi í menningarverkefni á vegum Uppbyggingarsjóðs EES með tékkneskum listamönnum.
Þá var komið að umræðum um orkumál. Baldur Pétursson bar fundinum kveðju Gests Péturssonar, forstjóra Umnhverfis- og orkustofnunar sem forfallaðist á síðustu stundu.
Einnig flutti Baldur áhugavert yfirlitserindi um mörg þeirra spennandi orkuverkefna sem Íslendingar hafa tekið þátt í með löndum í Mið-Evrópu. Þar á eftir fluttu Hafsteinn Helgason, yfirmaður viðskiptaþróunar hjá EFLU, Ester S. Halldórsdóttir, verkefnastjóri, og Alicja Wiktoria Stoklosa, skrifstofustjóri, GEORG, Óskar Einarsson, vélaverkfræðingur, hjá Verkís, Baldvin Björn Haraldsson, hæstaréttarlögmaður, BBA Legal og Sigurður Atli Jónsson, forstjóri Arctic Green Energy Europe stuttar en snarpar ræður um jákvæða reynslu sína af Uppbyggingasjóðsverkefnum.
Í lokin leit Borgar Þór Einarsson, varaframkvæmdastjóri skrifstofu Uppbyggingasjóðs EES (FMO) í Brussel til framtíðar. Þar kynnti hann helstu áherslu sjóðsins á nýju tímabili og kvaðst þess fullviss að Íslendingar myndu halda áfram að nýta sér þau fjölmörgu tækifæri sem gæfust í samstarfsverkefnum innan Uppbyggingasjóðs EES með þessum fimmtán samstarfslöndum.
Etir að Ágúst Hjörtur Ágústsson, forstöðumaður Rannís og ráðstefnustjóri, hafði slitið formlegri dagskrá var boðið upp á léttar veitingar og tengslamyndun.
Framundan eru samningarviðbræður um nýtt sjóðstímabil Uppbyggingarsjóðs EES og varð Póllandi fyrst viðtökuríkjanna fimmtán til að undirrita samning um nýtt tímabil í Varsjá þann 23. apríl sl. Rannís mun vera í hlutverki áætlanasamstarfsaðila í fjórum áætlunum í Póllandi, grunnrannsóknum, hagnýtum rannsóknum, menningu og grænum umbreytingum sem felur m.a. í sér að auglýsa tækifæri fyrir mögulega íslenska verkefnaaðila í samstarfsverkefnum í Póllandi og öðrum viðtökuríkjum sjóðsins þegar áætlanirnar verða tilbúnar og opnar fyrir umsóknum. Áhugasamir aðilar eru því hvattir til að fylgjast vel með þegar opnað verður fyrir umsóknir á nýju sjóðstímabili en tækifærin verða þá auglýst á vefsvæði Rannís og víðar.