Vinnustaðanámssjóður auglýsir eftir umsóknum

22.6.2023

Umsóknarfrestur rennur út þann 7. nóvember kl. 15:00. Umsækjendur athugi að breytinging er á tímabili styrkja frá fyrri úthlutunum. 

Auglýst er eftir umsóknum um styrki vegna vinnustaðanáms á tímabilinu 1. janúar 2023 til 31. október 2023. Um er að ræða breytingu á tímabili styrkja frá fyrri úthlutunum og verða nóvember og desember til úthlutunar á næsta ári.

Sjóðurinn veitir styrki til fyrirtækja og stofnana vegna vinnustaðanáms og starfsþjálfunar sem er skilgreindur hluti af starfsnámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla.

Umsóknarfrestur rennur út 7. nóvember 2023, kl. 15:00.

Markmið sjóðsins er að hvetja fyrirtæki og stofnanir til þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi.

Umsóknargögn og leiðbeiningar er að finna á síðu sjóðsins:

Vinnustaðanámssjóður  

Umsóknum skal skilað á rafrænu formi.

Nánari upplýsingar veitir: Skúli Leifsson, sími 515 5843,

vinnustadanamssjodur@rannis.is









Þetta vefsvæði byggir á Eplica