Vísindakaffi í Bolungarvík

27.9.2021

Dr. Ragnar Edvarsson verður gestur Vísindakaffis sem haldið verður fimmtudaginn 30. september kl. 17:00 á Bókakaffi í Bolungarvík. Mun Ragnar fjalla um stóriðju í Jökulfjörðum, hvalveiðistöðvar Norðmanna og þróun sjávarútvegs fram á miðja 20. öld. 

Dr. Ragnar Edvardsson, sérfræðingur við Rannsóknasetur HÍ á Vestfjörðum fjallar um rannsóknir sínar á hvalveiðistöðvum Norðmanna á Vestfjörðum á Vísindakaffi fimmtudadginn 30. september. 

Stöðvarnar lögðu grunninn að íslenskum sjávarútvegi og eftir að Norðmenn voru horfnir á braut, nýttu Íslendingar sér reynslu þeirra og hófu útgerð frá sömu stöðum. Þessi útgerð hafði mikil áhrif á byggðaþróun, með nýjum atvinnutækifærum og peningastreymi. Að sama skapi hafði það neikvæð áhrif á byggðaþróun þegar útgerð var hætt og í sumum tilfellum varð svo mikil fólksfækkun að stór svæði lögðust í eyði.  









Þetta vefsvæði byggir á Eplica