Vísindavaka 2019 - laugardag 28. september í Laugardalshöll

16.9.2019

Vísindavaka 2019 verður haldin í Laugardalshöllinni, laugardaginn 28. september kl. 15:00-20:00 Rannís stendur fyrir Vísindavöku á Íslandi, en hún er haldin samtímis í helstu borgum Evrópu síðustu helgina í september undir heitinu Researchers' Night. 

  • _ABH1065

Á Vísindavöku Rannís er almenningi boðið upp á sannkallaða vísindaveislu, þar sem okkar fremsta vísindafólk sýnir og segir frá rannsóknum og nýsköpun á lifandi og gagnvirkan hátt. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir! 

Á Vísindavöku geta gestir ýmist rölt um sýningarsvæðið sjálft sem er miðpunktur Vísindavöku, spjallað við vísindafólk og fræðst um rannsóknir þess eða sest inn í vísindakaffi og tekið þátt í áhugaverðum umræðum um valin efni! 

Sjá heildardagskrá hér.

Hér er tengill í upplýsingar um sýnendur og fjölbreytt viðfangsefni þeirra!

Á Vísindavökunni kynnir vísindafólk frá háskólum, stofnunum og fyrirtækjum rannsóknaverkefni sín fyrir almenningi á lifandi og skemmtilegan hátt á fjölda sýningarbása. Gestir fá að skoða og prófa ýmis tæki og tól sem notuð eru við rannsóknir, skoða afurðir verkefna og spjalla við vísindafólkið sjálft um hvernig er að starfa að vísindum, rannsóknum og nýsköpun. Fjölskyldan er í fyrirrúmi á Vísindavöku og gefst þar kjörið tækifæri til að kynna heim vísindanna fyrir börnum og unglingum.

Markmiðið með Vísindavökunni er að færa vísindin nær almenningi, kynna manneskjurnar á bak við vísindin og vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi rannsókna- og vísindastarfs í nútímasamfélagi. Verður það gert með lifandi kynningum og boðið upp á skemmtilega og fræðandi viðburði fyrir alla fjölskylduna. Allar vísindagreinar eru kynntar á Vísindavöku, hugvísindi jafnt sem raunvísindi.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica