Vorúthlutun Tækniþróunarsjóðs 2025

26.5.2025

Stjórn Tækniþróunarsjóðs hefur samþykkt að bjóða fulltrúum 69 verkefna sem sóttu um í sjóðinn á vormisseri að ganga til samninga um nýja styrki. 

  • Voruthlutun TÞS 2023

Í boði voru styrktarflokkarnir Fræ/Þróunarfræ, Hagnýt rannsóknarverkefni, Sproti, Vöxtur/Sprettur og markaður. Alls bárust 480 umsóknir og er árangurshlutfall styrktra verkefna sem hlutfall af innsendum umsóknum 14%.


Haft verður samband við verkefnisstjóra þessara verkefna og þeir boðaðir til samningafundar.

Í þessari úthlutun er styrkveiting til nýrra verkefna 686 milljónir króna en þar sem verkefnin eru til allt að þriggja ára nemur heildarkostnaður vegna þeirra 1.333 milljónum króna.

Samantektarskýrsla Tækniþróunarsjóðs fyrir vorúthlutun verður gerð aðgengileg í júní undir útgáfa og kynning.

Listi yfir styrkþega er birtur með fyrirvara um innsláttarvillur.

Hagnýt rannsóknarverkefni

Umsækjandi Verkefni
Háskóli Íslands Hagnýting himnutækni í kolefnisföngun fyrir þunna gasstrauma
Háskóli Íslands Greiningapróf fyrir brjóstakrabbamein í blóðvökva
Háskóli Íslands Grastrefjakassar fyrir fersk flök og heilan fisk
Háskóli Íslands Virkni molybdenum efnasambanda í dýramódeli gegn blásýrueitrun
Háskóli Íslands Prófun á nýju meðferðarmarki til að fyrirbyggja taugaskaða eftir súrefnisskort til heila.
Háskóli Íslands Skilvirk ensímhvarfefni og greiningar til að bæta mRNA framleiðslu
Háskóli Íslands Piezodrifnar Mott rafeindarásir - háaflsrofar og reiknirásir

Sproti

Umsækjandi Verkefni
Atlas Primer ehf. Einstaklingsmiðað og leikjavætt nám með talþjóni fyrir grunnskóla
Axelyf ehf. mRNA meðferð gegn sjálfsofnæmis lifrarbólgu
Björn Þór Jónsson Hljóðkelda
Everen ehf. Skuldbindingar lífeyrissjóða í rauntíma
Flöff ehf. Rannsókn og þróun á nýtingu textílúrgangs og ullar á Íslandi
Karl Thoroddsen THOR
Legible Software ehf. Legible Impact
Njörður Holding ehf. Magnesíumúrvinnsla úr sjávarvatni
Oktave ehf. Dýnamískar markaðslausnir fyrir tónlistarfólk
Polar Region ehf. Aska Yggdrasil
Revera Lesa
Rúnar Unnþórsson Fjölþrepa DC-DC spennubreytir til að hámarka nýtingu sólar- og vindorku
SagaReg ehf. Sjálfvirk skrif á lyfja-dossier
Sensey ehf Snjöll straumskynjun fyrir álver
Vatnsgæði ehf. VATNSGÆÐAVEFURINN – Byltingarkennd þjónusta þar sem vatnsgæðamælingar, gervigreindarúrvinnsla gagna og viðvaranir til hagaðila flæða allar í rauntíma óháð innviðum.
Visttorg ehf. Vistbók - Snjall gagngrunnsþjónusta fyrir umhverfisáhrif byggingarefna
Younes Abghoui Umbreyting CO₂ í verðmæt efni með háum virðisauka
qc ehf. Stafrænt gæðakerfi fyrir framleiðendur
Íslandsþari ehf. Vinnsla lífvirka efna úr stórþara
ÞYKJÓ ehf. Dýratónar

Vöxtur

Umsækjandi Verkefni
Axelyf ehf. Þróunar vinna fyrir lyfjarannsóknar leyfi fyrir BPH-555, ný meðferð gegn sjálfsofnæmissjúkdómum
Circular Library Network ehf. Hringrásardeilihagkerfi
HEILA LABS ehf. Aukin greining á vitglöpum með MindAid og NeuroFlow
Kæling ehf. ICECO₂L: Vistvæn Ískrapalausn með glýkól og CO₂ í stað Freons/ammóníaks
LOVE Synthesizers ehf. LOVE FM framleiðsluþróun
Lava Seaweed ehf. Landrækt rauðþörunga í hringrásarhagkerfi með laxeldi
Lipid Pharmaceuticals ehf. Omega-Cold FFA gegn kvefpestum
Minamo ehf. BIOSIL-2: Nýsköpun sem bætir yfirborð, betra líf
Nepsone ehf. Ný lyfjameðferð við Psoriasis
Ocean EcoFarm ehf. Djúpsjávarbeit
Rockpore ehf. Kolefnisneikvætt fylliefni fyrir gervigrasvelli - Kolefnisbinding í fótboltavöllum 21:35
SageWrite ehf. InnoVista: Gervigreind fyrir næstu kynslóð nýsköpunar

Markaðsþróun

Umsækjandi Verkefni
Aurbjörg ehf. Snjöll eftirlaunaáætlun fyrir 50 ára og eldri
Basta Ventures ehf. Basta - Uppboð aðgengileg öllum
Bikeson ehf. Bikeson hjólar í Evrópumarkað
Hefring ehf. Undirbúningur og ásýnd IMAS í Noregi
Orb ehf. Viðskiptaþróun fyrir skógmælingahugbúnað
SVAI ehf. Gervigreind til fækkunar spítalasýkinga.

Markaðssókn

Umsækjandi Verkefni
Ankeri Solutions ehf. Sókn Ankeris á Asíumarkað
Fischersund ehf. Auka vitund um vörumerki, auka sölu og styrkja þekkingu á íslenskri ilmgerð í Bandaríkjunum með mikilvægum markaðssetningar aðgerðum.
Massif Network ehf. Massif eykur sýnileika sinn í kvikmyndaiðnaði
Vitar Games ehf. DIG IN – Markaðssókn

Fræ/Þróunarfræ

Fyrri vorúthlutun

Umsækjandi Verkefni
Aðalsteinn Ólafsson Útdráttur nagla með rafsegulpúls
Bryndís Bergþórsdóttir ALDA: Sjálfvirk málsýnagreining
Daníel Ómar Frímannsson Erfðameðferð við Dupuytren's sjúkdómi: Þróun nýrrar mRNA-LNP meðferðar til að draga úr bandvefsmyndun
Daníel Ómar Frímannsson Notkun NRF2 mRNA til að virkja andoxunarviðbrögð í lifur gegn skorpulifur og öðrum lifraskjúkdómum
Guðrún Kolbeinsdóttir Glerun
Hans Rúnar Snorrason Málþjálfi - Frumgerð gagnvirks íslenskukennsluforrits með raddstýringu
Jón Bragi Gíslason Svarti Svanurinn
Kjartan Thors Hagedorn-Olsen Hringskrá
Kristján Örn Aðalbjörnsson Vital Sync
Lijing Zhou Snotra Sjálfbærni
Rúnar Þór Þórarinsson GAMESON - True Story
Sigurbjörn Már Aðalsteinsson Smáskala metanhreinsunarbúnaður
Sigurbjörn Már Aðalsteinsson Furuvax
Yngvi Ómar Sigrúnarson AIDr

Seinni vorúthlutun

Umsækjandi Verkefni
Aríel Jóhann Kessler Árnason Basaltra
Bjarni Rúnar Heimisson SeaBid - framtíðin í sölu sjávarafurða
Jónas Óskar Magnússon KnotHR
Katrín Lilja Kristinsdóttir Hert Hjarta - nasl úr þurrkuðum lambahjörtum
Sturla Þorvaldsson Þínar Síður
Teitur Ari Theodórsson Lyfjaskömmtun








Þetta vefsvæði byggir á Eplica