Ágúst Ingþórsson nýr forstöðumaður Rannís

1.4.2022

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur skipað Ágúst Hjört Ingþórsson forstöðumann Rannsóknamiðstöðvar Íslands frá 1. apríl.

  • Ágúst Hjörtur Ingþórsson

Ágúst Hjörtur hefur frá árinu 2020 starfað sem sviðsstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs Rannís og var hann jafnframt staðgengill forstöðumanns. Ágúst Hjörtur réðst til starfa hjá RANNÍS árið 2013 og gegndi starfi sviðsstjóra mennta- og menningarsviðs til ársins 2020. Þar áður hafði hann m.a. stýrt Rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands í 13 ár.

Ágúst er með BA próf í heimspeki og almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands, meistarapróf í heimspeki frá University of Ottawa og vinnur nú að doktorsritgerð samhliða starfi.

Ráðuneytið þakkar í tilkynningu sinni Hallgrími Jónassyni fráfarandi forstöðumanni fyrir framúrskarandi störf á liðnum árum. „Rannís gegnir lykilhlutverki á sviði rannsókna, nýsköpunar, menntunar og menningarmála og hefur með ómældum metnaði stuðlað að mikilvægri framþróun þekkingar í íslensku samfélagi."

Tilkynning ráðuneytisins









Þetta vefsvæði byggir á Eplica