Alþjóðastarf í starfsmenntun, það borgar sig!
Málstofa um alþjóðastarf í starfsmenntun verður haldin á Nauthóli, mánudaginn 27. nóvember kl. 14:00-16:30. Kynnt verður rannsókn sem gerð var meðal nemenda í starfsmenntun sem hafa farið í starfsþjálfun til Evrópu með styrk frá Erasmus+ áætluninni, en þau telja reynsluna verulega verðmæta, bæði faglega og félagslega.
Auk þess að fjalla um rannsóknina og niðurstöður hennar mun málstofan taka fyrir tækifærin sem bjóðast í Erasmus+ áætluninni fyrir þennan markhóp. Áhersla verður lögð á gæði starfsnámsins og mat sem og mikilvægi starfs alþjóðafulltrúa í því sambandi. Nemendur munu segja frá sinni reynslu og fulltrúar skóla og fyrirtækja ræða mikilvægi og áhrif evrópsks samstarfs á starfsmenntun.
Málstofan er skipulögð af starfsmenntateymi Erasmus+ hjá Rannís. Hún er hugsuð fyrir skólastjórnendur, alþjóðafulltrúa í framhaldsskólum, annað skólafólk og fulltrúa fyrirtækja sem sinna starfsþjálfun fyrir starfsmenntanema.
Dagskrá:
- Erindi mennta- og barnamálaráðuneytisins
Ragnhildur Bolladóttir, teymisstjóri framhaldsskóla - Hvers virði er alþjóðastarf í starfsmenntun?
Aðalheiður Jónsdóttir, sviðsstjóri mennta- og menningarsviðs Rannís - Hvað segja starfsmenntanemendur?
Viðhorf og reynsla nemenda í starfsnámi í Evrópu á vegum Erasmus+ áætlunarinnar.
Elsa Eiríksdóttir, menntavísindasviði Háskóla Íslands, Rannsóknarstofu um verk – og starfsmenntun - Hvers vegna eru alþjóðafulltrúar mikilvægir?
Sabine Weger, alþjóðaleiðtogi CMA France (Samtök fyrirtækja í handverksgreinum í Frakklandi) - upptaka - Starfsþjálfun erlendis og ferilbók, hvernig virkar það?
Sigurjóna Jónsdóttir, verkefnastjóri vinnustaðanáms hjá Tækniskólanum - Sögur af vettvangi
Inga Birna Antonsdóttir, alþjóðafulltrúi hjá Iðunni fræðslusetri
Frásögn og samtal við nemendur í starfsmenntun:
Írena Fönn Clemmensen, nýsveinn í hársnyrtiiðn
KristínÝr Gísladóttir snyrtifræðinemi, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti - Pallborðsumræður
Áhrif og áskoranir evrópsks samstarfs og starfsþjálfunar nemenda erlendis
Sigríður Huld Jónsdóttir, skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri,
Hildur Ingvarsdóttir, skólameistari Tækniskólans,
Ágústa Unnur Gunnarsdóttir, alþjóðafulltrúi Fjölbrautaskólans í Breiðholti
Magnús Óskar Guðnason, meistari í bifvélavirkjun hjá Öskju - Samantekt
Fundarstjóri: Sigríður Hulda Jónsdóttir, MA náms- og starfsráðgjöf, MBA, eigandi SHJ ráðgjafar.
Léttar veitingar í boði.