Auglýst eftir umsóknum í Æskulýðssjóð
Frestur til að sækja um styrki úr sjóðnum er til miðvikudagsins 15. október 2025 klukkan 15:00
Hlutverk Æskulýðssjóðs er að styrkja eftirtalin verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka:
- Sérstök verkefni sem unnin eru fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra
- Þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða
- Nýjungar og þróunarverkefni
- Samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.
Hvorki er heimilt að styrkja árvissa eða fasta viðburði í félagsstarfi, svo sem þing, mót eða þess háttar viðburði né ferðir hópa.
Allir sem eru í forsvari fyrir æskulýðsfélög og æskulýðssamtök geta sótt um styrk úr sjóðnum.
Að þessu sinni verður sérstök áhersla lögð á að styrkja verkefni sem byggja á samtali ungs fólks um samkennd, inngildingu og forvarnir gegn áhættuhegðun.
Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar er að finna á vefsvæði Æskulýðssjóðs