Auglýst eftir umsóknum í Æskulýðssjóð

29.8.2023

Búið er að opna fyrir umsóknir í Æskulýðssjóð. Frestur til að sækja um styrki úr sjóðnum er 16. október 2023 klukkan 15:00.

Hlutverk Æskulýðssjóðs er að styrkja verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.

Að þessu sinni verður lögð áhersla á að styðja verkefni sem stuðla að kynningu, nýliðun og nýsköpun.

Allir sem eru í forsvari fyrir æskulýðsfélög og æskulýðssamtök geta sótt um styrk úr sjóðnum.

Sérstök áhersla verður að þessu sinni að styrkja verkefni sem stuðla að virkni og félagslegri þátttöku.

Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar er að finna á síðu Æskulýðssjóðs .









Þetta vefsvæði byggir á Eplica