Auglýst eftir styrkumsóknum í Hljóðritasjóð

14.8.2023

Veittir eru styrkir til að taka upp nýja, frumsamda íslenska tónlist. Styrkir eru veittir til ákveðinna verkefna að hámarki til eins árs. Umsóknarfrestur er til 15. september 2023 kl. 15:00

Hlutverk Hljóðritasjóðs er að efla íslenska hljóðritagerð í tónlist til útgáfu hljóðrita, samkvæmt reglum um Hljóðritasjóð.

Umsóknum og lokaskýrslum skal skilað rafrænt. Hafi umsækjandi hlotið styrk áður, þarf að skila inn loka- eða áfangaskýrslu til að ný umsókn verði tekin til umfjöllunar. Framhaldsstyrkir eru ekki veittir til verkefna sem áður hafa hlotið styrk úr sjóðnum.
Skilyrði styrkveitingar er að hljóðrit hafi ekki komið út á þeim tíma sem umsókn er móttekin af stjórn Hljóðritasjóðs. Umsókn er gild vegna hljóðrits sem kemur út eftir að sótt hefur verið um styrk en áður en úthlutun hefur farið fram.

Umsóknum skal skilað rafrænt. Aðgangur að umsóknarkerfi, eyðublöðum fyrir skýrslur, matskvarða, ásamt lögum og reglugerðum um sjóðinn og fleira er að finna á síðu sjóðsins. Nota þarf rafræn skilríki við gerð umsóknar og eingöngu er tekið við rafrænum fylgigögnum.

Vefur Hljóðritasjóðs

Fyrirspurnir skal senda á: hljodritasjodur@rannis.is









Þetta vefsvæði byggir á Eplica