Auglýst eftir umsóknum í Jafnréttissjóð Íslands

15.3.2023

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Jafnréttissjóð Íslands og er umsóknarfrestur til 27. apríl 2023, kl. 15:00

Til­gangur Jafnréttissjóðs Íslands er að fjármagna eða styrkja verkefni og rannsóknir sem miða að því að stuðla að jafnrétti kynjanna í íslensku samfélagi og á alþjóðavísu.

Tilgreint er í fjármálaáætlun hvaða ár úthlutun eigi að fara fram á hverju fimm ára tímabili en gert er ráð fyrir úthlutun á tveggja ára fresti.

Jafnréttissjóður Íslands nýtur framlaga af fjárlögum. Árið 2023 hefur sjóðurinn 60. m.kr. til ráðstöfunar.

Úthlutað verður næst úr sjóðnum 19. júní 2023.

Umsóknum skal skila á rafrænu formi í gegnum umsóknarkerfi Rannís (mínar síður). Ekki er tekið við umsóknum á öðru formi. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu sjóðsins.

Mínar síður  vefsíða Jafnréttissjóðs









Þetta vefsvæði byggir á Eplica