Auglýst eftir umsóknum í NOS-HS

19.10.2016

NOS-HS býður upp á styrki til að standa straum af kostnaði vegna vinnusmiðja (workshops). Næsti umsóknarfrestur verður í mars 2017.

Rannsakendur sem starfa að rannsóknum í hug- og félagsvísindum og skyldum greinum geta sótt um styrk. Rannsakendur frá að minnsta kosti þremur Norðurlöndum skulu koma hverri umsókn, þar sem skipulagðar eru tvær til þrjár vinnusmiðjur í röð.

Markmið styrkjanna er að stuðla að samvinnu og myndun tengslanets milli norrænna rannsakenda og að þróun nýrra rannsóknasviða og verkefna innan hug- og félagsvísinda á Norðurlöndunum. Markmiðið er einnig að styðja þátttöku norrænna rannsakenda í stórum alþjóðlegum verkefnum (t.d. Horizon 2020).

Hægt er að sækja um styrk fyrir kostnaði við skipulagningu vinnusmiðjanna, en ekki fyrir kostnaði vegna rannsókna. Vinnusmiðjurnar skal halda á Norðurlöndunum á árunum 2018 og 2019. Árið 2016 var úthlutunarhlutfallið 43% og meðal upphæð styrkja fyrir röð vinnusmiðja var 410 þúsund sænskar krónur.

Umsóknarkerfi NOS-HS verður opnað 18. janúar 2017 og umsóknarfrestur rennur út 21. mars 2017. Nánari upplýsingar verða birtar á vefsíðu NOS-HS í nóvember 2016.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica