Auglýst eftir umsóknum í NOS-HS

2.2.2018

NOS-HS býður upp á styrki til að standa straum af kostnaði vegna vinnusmiðja (workshops). Næsti umsóknarfrestur er 20. mars 2018.

Rannsakendur sem starfa að rannsóknum í hug- og félagsvísindum og skyldum greinum geta sótt um styrk. Rannsakendur frá að minnsta kosti þremur Norðurlöndum skulu koma hverri umsókn, þar sem skipulagðar eru tvær til þrjár vinnusmiðjur í röð. 

Markmið styrkjanna er að stuðla að samvinnu og myndun tengslanets milli norrænna rannsakenda og að þróun nýrra rannsóknasviða og verkefna innan hug- og félagsvísinda á Norðurlöndunum. Markmiðið er einnig að styðja þátttöku norrænna rannsakenda í stórum alþjóðlegum verkefnum (t.d. Horizon 2020).

Hægt er að sækja um styrk fyrir kostnaði við skipulagningu vinnusmiðjanna, en ekki fyrir kostnaði vegna rannsókna.

Umsóknarkerfi NOS-HS hefur verið opnað og umsóknarfrestur rennur út 20. mars 2018. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu NOS-HS.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica